Legal notice

Lagalegur fyrirvari

Um viðskipti við BSport og túlkun skilmála okkar gilda íslensk lög.

Komi upp ágreiningur milli BSport og viðskiptavinar mun BSport leitast við að leysa málið með samkomulagi.

Takist ekki að leysa ágreining með samkomulagi getur neytandi, eftir því sem við á, leitað til viðeigandi úrskurðaraðila eða borið málið undir íslenska dómstóla samkvæmt almennum reglum.

Ekkert í skilmálum BSport takmarkar þau réttindi sem neytendum eru tryggð samkvæmt ófrávíkjanlegum ákvæðum íslenskra laga.

Ef þú hefur spurningar varðandi skilmála BSport getur þú haft samband við okkur á bsport@bsport.is.