Refund policy
Skila- og endurgreiðsluskilmálar
14 daga réttur við kaup í vefverslun
Við kaup í vefverslun BSport hefur neytandi 14 daga til að falla frá kaupum frá þeim degi sem varan er afhent, í samræmi við gildandi lög um neytendasamninga.
Ef þú vilt nýta rétt þinn til að falla frá kaupum skaltu tilkynna BSport um það innan 14 daga frá móttöku vörunnar með tölvupósti á bsport@bsport.is.
Viðskiptavinur ber kostnað við að senda vöruna til baka, nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.
Ástand vöru við skil
Viðskiptavinur má skoða og prófa vöru að því marki sem nauðsynlegt er til að staðreyna eðli, eiginleika og virkni hennar.
Ef vara hefur verið notuð umfram það sem nauðsynlegt er til slíkrar skoðunar getur BSport dregið frá endurgreiðslu þá verðrýrnun sem orðið hefur á vörunni.
Vöru skal skila ásamt öllum fylgihlutum og, eftir því sem við á, í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð og eðli vörunnar er með þeim hætti að réttur til að falla frá kaupum fellur niður þegar innsigli er rofið, er ekki hægt að skila henni eftir að innsiglið hefur verið rofið.
Framvísa þarf reikningi, pöntunarstaðfestingu eða annarri staðfestingu á að varan hafi verið keypt hjá BSport.
Endurgreiðsla
Þegar réttur til að falla frá kaupum er nýttur er kaupverð vörunnar endurgreitt samkvæmt gildandi lögum. Endurgreiðsla fer að jafnaði fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin.
BSport getur haldið endurgreiðslu eftir þar til varan hefur borist til okkar eða viðskiptavinur hefur sýnt fram á að hún hafi verið send til baka.
Ef viðskiptavinur valdi dýrari afhendingarmáta en ódýrasta staðlaða afhendingarmáta sem BSport bauð er BSport ekki skylt að endurgreiða þann viðbótarkostnað.
Skiptimiðar og gjafir
Ef vöru er skilað með skiptimiða er hægt að skipta henni fyrir aðra vöru hjá BSport, að því gefnu að varan sé í því ástandi sem áskilið er samkvæmt skiptireglum BSport.
Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru er gefin út rafræn inneignarnóta eftir að varan hefur verið móttekin og samþykkt til skila. Inneignarnótan er gefin út í formi kóða sem hægt er að nota í vefverslun BSport.
Gölluð eða röng vara
Ef vara reynist gölluð, skemmd við afhendingu eða önnur vara berst en pöntuð var, skaltu hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er á bsport@bsport.is.
Réttindi viðskiptavina vegna gallaðrar vöru fara eftir gildandi lögum og takmarkast ekki af almennum skila- og skiptireglum BSport.
Hvernig skila ég vöru?
Sendu tölvupóst á bsport@bsport.is og láttu pöntunarnúmer fylgja með ásamt upplýsingum um hvaða vöru þú óskar eftir að skila.
Þegar beiðni um vöruskil hefur verið móttekin sendum við þér upplýsingar um næstu skref.
Vinsamlegast sendu ekki vöru til okkar án þess að hafa fyrst tilkynnt vöruskilin.
Ef þú hefur spurningar varðandi vöruskil eða endurgreiðslur geturðu haft samband við okkur á bsport@bsport.is.