Skip to product information
1 af 5

Picsil

Picsil Neoprene hnéhlífar 7mm

Picsil Neoprene hnéhlífar 7mm

Verð 8,990 kr.
Verð Útsöluverð 8,990 kr.
Tilboð Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingakostnaður reiknaður í næsta skrefi.
Stærð

Hámarksstuðningur, stöðugleiki og öryggi í þyngstu lyftunum.

Picsil Neoprene hnéhlífarnar eru hannaðar fyrir þá sem vilja meiri stöðugleika, stuðning í lyftingum. Hvort sem þú ert að taka þungar hnébeygjur, réttstöðulyftur eða krefjandi CrossFit æfingar veita hnéhlífarnar þéttan stuðning án þess að skerða þægindi.

Hnéhlífarnar eru framleiddar úr þéttu og slitsterku neoprene-efni sem veitir góðan stuðning og stöðugleika í kringum hnéliðinn. Sniðið tryggir að þær falli vel að hnénu og fylgi hreyfingum líkamans.

Helstu eiginleikar:

  • Öflugur stuðningur og stöðugleiki – veita þéttan stuðning í kringum hnéliðinn og aukið öryggi í þungum lyftum.

  • Hágæða neoprene-efni – slitsterkt efni sem sameinar stuðning og þægindi.

  • Snið sem fellur að hnénu – tryggir gott hreyfifrelsi.

  • Styrktir saumar – hannaðir til að þola mikla og reglulega notkun.

  • Stamt innra byrði – hjálpar hnéhlífunum að haldast á sínum stað á æfingu.

  • Svitaþolið efni – auðvelt að halda hreinu.

  • Henta bæði á æfingar og í keppni – hannaðar fyrir kröfur styrktarþjálfunar og keppnislyftinga.

 

Á ég að fá mér Hex Tech hnéhlífarnar eða Neoprene hnéhlífarnar?

  • Fyrir crossfit með hlaupi, hoppum, hnébeygjum og ólíkum æfingum mælum við með Hex Tech
  • Fyrir þungar hnébeygjur, réttstöðulyftur og mikla styrktarþjálfun mælum við með Neoboost

 

Sjá meira